Punktakerfi Petriu – persónuvernd – PETRIA Skip to content

Punktakerfi Petriu – persónuvernd

1. Ábyrgðaraðili

Petria ehf., kt. 550822-0590, Strandgötu 32, 220 Hafnarfirði, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í punktakerfi Petriu. Netfang: [REDACTED]. Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR).

2. Hvaða upplýsingum er safnað

  • Eigandanúmer og tenging við ræktendanúmer
  • Netfang
  • Upplýsingar um kaup: dagsetning, verslun og upphæð
  • Mynd af kvittun (á henni geta verið aðrar upplýsingar, t.d. hluti greiðslukortanúmers – vinsamlegast hyljið það)
  • Punktastaða og inneign, og notkun inneignar hjá Petriu (Strandgötu og petria.is)
  • Samþykki fyrir markaðspóstum, ef það er veitt
  • Hjá ræktendum: upplýsingar sem þarf til að reikna og greiða ársfjórðungslega þóknun

3. Tilgangur

  • Að staðfesta kvittanir, reikna punkta og skrá inneign
  • Að koma í veg fyrir misnotkun, t.d. tvískráðar eða falsaðar kvittanir
  • Að reikna og greiða ræktendum 5% þóknun ársfjórðungslega
  • Að senda fréttabréf og tilboð – aðeins þeim sem hafa samþykkt það

4. Lagagrundvöllur

  • Samningur (6. gr. 1. mgr. b-liður GDPR): vinnsla vegna þátttöku í punktakerfinu, útreiknings punkta, inneignar og þóknunar.
  • Lagaskylda (c-liður): varðveisla bókhaldsgagna skv. lögum nr. 145/1994 um bókhald.
  • Lögmætir hagsmunir (f-liður): varnir gegn svikum og misnotkun.
  • Samþykki (a-liður): markaðspóstar. Samþykki er ekki skilyrði fyrir þátttöku og má afturkalla hvenær sem er (t.d. með afskráningarhlekk í hverjum pósti).

5. Vinnsluaðilar

Petria notar eftirfarandi þjónustuaðila sem vinna gögnin fyrir okkar hönd samkvæmt vinnslusamningum:

  • Google (Google Workspace: eyðublöð, töflureiknar og geymsla kvittana)
  • Shopify (skráning inneignar og vefverslun)
  • Mailchimp / Intuit (fréttabréf, aðeins fyrir þá sem samþykkja)

Sumir þessara aðila geta flutt gögn út fyrir EES. Slíkur flutningur byggir á viðeigandi verndarráðstöfunum, s.s. EU–US Data Privacy Framework eða stöðluðum samningsákvæðum ESB.

Upplýsingar eru ekki seldar né afhentar öðrum í markaðstilgangi.

6. Varðveislutími

  • Kvittanir og gögn sem tengjast bókhaldi (inneign, þóknun): 7 ár frá lokum reikningsárs, skv. lögum um bókhald.
  • Önnur gögn um þátttöku: þar til aðgangi er lokað eða þátttöku hætt, og síðan eytt innan 12 mánaða frá því að þátttöku lýkur.
  • Markaðsupplýsingar: þar til samþykki er afturkallað.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • fá aðgang að upplýsingum um þig og afrit af þeim
  • fá rangar upplýsingar leiðréttar
  • fá upplýsingum eytt, nema varðveisluskylda gildi
  • andmæla vinnslu eða fá hana takmarkaða
  • fá gögn flutt (flutningsréttur)
  • afturkalla samþykki hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á fyrri vinnslu

Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

8. Hafðu samband

Fyrirspurnir og beiðnir: [REDACTED]. Við svörum innan mánaðar.

Síðast uppfært: 27. október 2026