Punktakerfi Petriu – persónuvernd
1. Ábyrgðaraðili
Petria ehf., kt. 550822-0590, Strandgötu 32, 220 Hafnarfirði, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í punktakerfi Petriu. Netfang: [REDACTED]. Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR).
2. Hvaða upplýsingum er safnað
- Eigandanúmer og tenging við ræktendanúmer
- Netfang
- Upplýsingar um kaup: dagsetning, verslun og upphæð
- Mynd af kvittun (á henni geta verið aðrar upplýsingar, t.d. hluti greiðslukortanúmers – vinsamlegast hyljið það)
- Punktastaða og inneign, og notkun inneignar hjá Petriu (Strandgötu og petria.is)
- Samþykki fyrir markaðspóstum, ef það er veitt
- Hjá ræktendum: upplýsingar sem þarf til að reikna og greiða ársfjórðungslega þóknun
3. Tilgangur
- Að staðfesta kvittanir, reikna punkta og skrá inneign
- Að koma í veg fyrir misnotkun, t.d. tvískráðar eða falsaðar kvittanir
- Að reikna og greiða ræktendum 5% þóknun ársfjórðungslega
- Að senda fréttabréf og tilboð – aðeins þeim sem hafa samþykkt það
4. Lagagrundvöllur
- Samningur (6. gr. 1. mgr. b-liður GDPR): vinnsla vegna þátttöku í punktakerfinu, útreiknings punkta, inneignar og þóknunar.
- Lagaskylda (c-liður): varðveisla bókhaldsgagna skv. lögum nr. 145/1994 um bókhald.
- Lögmætir hagsmunir (f-liður): varnir gegn svikum og misnotkun.
- Samþykki (a-liður): markaðspóstar. Samþykki er ekki skilyrði fyrir þátttöku og má afturkalla hvenær sem er (t.d. með afskráningarhlekk í hverjum pósti).
5. Vinnsluaðilar
Petria notar eftirfarandi þjónustuaðila sem vinna gögnin fyrir okkar hönd samkvæmt vinnslusamningum:
- Google (Google Workspace: eyðublöð, töflureiknar og geymsla kvittana)
- Shopify (skráning inneignar og vefverslun)
- Mailchimp / Intuit (fréttabréf, aðeins fyrir þá sem samþykkja)
Sumir þessara aðila geta flutt gögn út fyrir EES. Slíkur flutningur byggir á viðeigandi verndarráðstöfunum, s.s. EU–US Data Privacy Framework eða stöðluðum samningsákvæðum ESB.
Upplýsingar eru ekki seldar né afhentar öðrum í markaðstilgangi.
6. Varðveislutími
- Kvittanir og gögn sem tengjast bókhaldi (inneign, þóknun): 7 ár frá lokum reikningsárs, skv. lögum um bókhald.
- Önnur gögn um þátttöku: þar til aðgangi er lokað eða þátttöku hætt, og síðan eytt innan 12 mánaða frá því að þátttöku lýkur.
- Markaðsupplýsingar: þar til samþykki er afturkallað.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá aðgang að upplýsingum um þig og afrit af þeim
- fá rangar upplýsingar leiðréttar
- fá upplýsingum eytt, nema varðveisluskylda gildi
- andmæla vinnslu eða fá hana takmarkaða
- fá gögn flutt (flutningsréttur)
- afturkalla samþykki hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á fyrri vinnslu
Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
8. Hafðu samband
Fyrirspurnir og beiðnir: [REDACTED]. Við svörum innan mánaðar.
Síðast uppfært: 27. október 2026